






Garðmeistarar ehf
Fyrirtækið var stofnað af okkur bræðrunum Kristjáni Magnússyni og Ingvari Magnússyni
Við erum menntaðir skrúðgarðyrkjufræðingar og höfum samanlagt rúmlega 25 ára reynslu af skrúðgarðyrkjustörfum. Það má raunar segja að skrúðgarðyrkjan sé okkur í blóð borin þvi bæði faðir okkar og afi lærðu skrúðgarðyrkju og unnu sem slíkir. Faðir okkar hefur einni gefið út garðyrkjubækur.
Við hjá Garðmeisturum leggjum mikla áherslu á að vera með duglegt og samviskusamt starfsfólk sem skilar vönduðum vinnubrögðum. Við tökum að okkur alhliða garðyrkjustörf t.d hellulagnir, hleðslur, pallasmíði, skjólgirðingar, þökulagnir, gróðursetningar, trjá og runnaklippingar og trjáfellingar.
Við hjá Garðmeisturum tökum að okkur bæði stór og smá verk og erum vel tækjum búnir.
Garðmestarar ehf vinna ýmist eftir hugmyndum garðeigenda eða teikningum arkitekta.
Einnig erum við í góðu sambandi við aðra fagaðila í garðyrkjugeiranum og erum þvi vel í stakk búnir til að sinna vel þörfum viðskiptavina okkar.
Gerum tilboð í verkefni
Hafið samband í síma 773-0400 eða This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it og gefið upp ykkar hugmyndir um það sem þið viljið láta gera.Við mætum á staðinn,tökum út verkið og gerum tílboð þér að kostnaðarlausu. Ánægðir viðskiptavinir eru okkar besta auglýsing.


